Gullfallegur handsmíðaður Nakiri frá Shigeki Tanaka í allra hæsta gæðaflokki!
Kjarni blaðsins er gerður úr hágæða SG2 ryðfríu súper stáli sem heldur biti mjög lengi og það er klætt fallegu damaskus stáli1
Handfangið er úr fallegum eboný við.
Kemur í fallegum viðar kassa.
Blaðlengd: 16,5cm.
Stál:SG2 63hrc.
Handfang: Eboný.
Framleiðandi: Shigeki Tanaka.
Upprunaland: Japan.
Tanaka hnífar eru framleiddir á litlu gamaldags verkstæði í Miki City af Shigeki Tanaka og smáum hópi starfsmanna hans. Hver Tanaka hnífur er handsmíðaður á hefðbundinn hátt eins og gert hefur verið í mörg hundruð ár í Japan.
ATH!
Ekki setja hnífinn í uppþvottavél.
Ekki skilja hnífinn eftir í vatni eða blautu ástandi í langan tíma.
Eftir notkun skal handþvo blaðið og handfangið vandlega og þurrka það.
Þetta er afar beittur hnífur. Vinsamlegast gætið sérstakrar varúðar við notkun og geymslu hans.
Ekki nota hnífinn til að skera bein eða frosinn matvæli, harða skeljar eins og humar og krabba.
Við mælum með að nota japanska brýnsteina til að brýna hnífinn þegar hann verður bitlaus.