Vandaður og fallegur handsmíðaður hnífur frá Adam Þórarinssyni (eiganda Hnifur.is)
Blaðið er úr 26c3 gæða karbon stáli (ekki ryðfrítt) sem heldur biti mjög vel og handfangið er úr fallegu eyfirsku birki og hnotu.
Vandað spænskt leður hulstur fylgir.
Hnífurinn er 100% handsmíðaður á Akureyri!
Blaðlengd: 12cm.
Stál: 26c3 (3mm), 61hrc.
Handfang: Íslenskt Birki og Hnota.
Framleiðandi: Adam Þórarinsson/Hnifur.is.
Upprunaland: Ísland.
ATH!
Þetta er hnífur úr kolefnisstáli sem getur auðveldlega ryðgað og mislitast og þarfnast sérstakrar varúðar til að koma í veg fyrir ryð.
Ekki setja hnífinn í uppþvottavél.
Ekki skilja hnífinn eftir í vatni eða blautu ástandi í langan tíma.
Eftir notkun skal handþvo blaðið og handfangið vandlega og þurrka það.
Þetta er afar beittur hnífur. Vinsamlegast gætið sérstakrar varúðar við notkun og geymslu hans.
Gott að bera olíu á blaðið af og til.
Við mælum með að nota japanska brýnsteina til að brýna hnífinn þegar hann verður bitlaus.